28janúar

I´m back.

Ætla nú bara að kasta kveðju á ykkur sem nenna að kíkja hérna inn.  Er reyndar farin að sakna þess að að koma hér inn og pára niður það sem gerist......  Nonni á afmæli í dag og í tilefni af því elda ég hamborgarhrygg.  Tvibbarnir færðu okkur AB mjólk í rúmið í morgunn.................ægilega notalegt og sætt.
þar til næst......
28. janúar 2010 klukkan 13:13
Jón og Elsa María.
Engin athugasemd
29apríl

smá brandari...

 

Once upon a time lived a beautiful Queen with large breasts.

 Nick the Dragon Slayer obsessed over the Queen for this reason.

 He knew that the penalty for his desire would be death should he try to  touch them, but he had to try.

 One day Nick revealed his secret desire to his colleague, Horatio the  Physician, the King's chief doctor.. Horatio thought about this and said that he could arrange for Nick to more than satisfy his desire, but it would cost him 1000 gold coins to arrange it.

 Without pause Nick readily agreed to the scheme.

 The next day, Horatio made a batch of itching powder and poured a little bit into the Queen's bra while she bathed.

 Soon after she dressed, the itching commenced and grew intense.

Upon being summoned to the Royal Chambers to address this incident,

 Horatio informed the King and Queen that only a special saliva, if applied for four hours, would cure this type of itch, and that tests had shown that only the saliva of Nick would work as the antidote to cure the itch.

The King, eager to help his Queen, quickly summoned Nick to their  chambers.. Horatio then slipped Nick the antidote for the itching powder, which he put into his mouth, and for the next four hours, Nick worked passionately on the Queen's large and magnificent breasts. The Queen's itching was eventually relieved, and Nick left satisfied and hailed as a hero.

 Upon returning to his chamber, Nick found Horatio demanding his payment of 1000 gold coins. With his obsession now satisfied, Nick couldn't have cared less knowing that Horatio could never report this matter to the King and with a laugh told him to get lost.

 The next day, Horatio slipped a massive dose of the same itching powder into the kings underwear.

 

The king immediately summond Nick

 

The moral of the story - Pay your bills.

29. apríl 2009 klukkan 15:50
Jón og Elsa María.
Engin athugasemd
27apríl

I´m back.....

Jæja, gott fólk, nú er ég komin aftur.  Nú er ég búin að prófa fésbókina og þetta  og af tvennu illu þá er þetta nú ögn skárra.  Hér er maður allavega einn með sjálfum sér enginn að poppast upp og að senda manni undarlegustu spurningalista og gátlista yfir því hvað maður er, getur verið eða hvað sem er. 
Ég er a hugsa um að  setja hérna inn myndir af handverkinu sem ég er að gera og bjóða til sölu ef einhver hefði áhuga.
vinnumaðurinn nýi er kominn.  Hann heitir Nicholas ekki Nikolás eins og við vildum kalla hann en það þýðir víst jólasveinn.  Kannski ég kalli hann bara Stúf......

Hann er ágætur greyið.  Vill mjög vel og er vandvirkur.

Þar til næst.....
27. apríl 2009 klukkan 15:34
Jón og Elsa María.
Engin athugasemd
02nóvember

Uppskriftir

Jæja, nú hef ég ákveðið að reyna að auka vinsældir þessara síðu.........  ég ætla að búa til undirsíður hér til hliðar með  uppskriftum.  Síðan er hægt að senda inn fyrirspurnir ef þær eru óskýrar eða óskir um eitthvað sem ykkur vantar eða bara biðja um aðstoð.......

Ég ætla að byrja á brauði sem ég var að baka um helgina.  Þetta er mjög einfalt og mjög ódýrt brauð sem ég hef prófað á heimilisfólkinu og tengdafólkinu og öllum líkaði vel.

Ég hvet ykkur til að prófa og síðan að kommenta um gjörningin hér.
Kv, Elsa María.
02. nóvember 2008 klukkan 19:06
Jón og Elsa María.
2 athugasemdir
29október

Nenni þessu eiginlega ekki.

Ég er að fara að hætta þessu,  það er engin sem les þetta kjaftæði hvort sem er og þeir fáu sem gera það skrifa aldrei neitt kvitt.  Ég get alveg eins talað við sálfan mig (ég geri það hvort sem er).
29. október 2008 klukkan 07:44
Jón og Elsa María.
1 athugasemd
27október

27.okt 2008

Jæja,  það er barasta blíðan......

Síðustu lömbin sem við höfum heimt fara í sláturhús í dag.  Ætli við förum svo ekki að gera slátur eða bjúgu fljótlega nema hvort tveggja sé.

Það var nú ljóta snjókoman föstudag og laugardag,   það er bara allt á kafi í snjó.

Jóhanna Jörgensen kom að heimsækja stelpurnar á laugardaginn þar sem þær voru ákveðnar í að gera snjóhús, en það var ófær heimreiðin svo að stelpurnar tóku á móti henni um miðja leið.   Síðan skóf og skóf og snjóaði og snjóaði.  Þær mokuðu eins og lífið væri að leysa og ekkert eða lítið gekk.  En það var svo gott að koma inn og fá nýbakaðar súkkulaðibollur og heitt súkkulaði.

Síðan var frábært veður í gær og ég fór nánast ekkert út.... nema til að fara á milli húsi.  Frá mér og uppeftir og aftur heim síðan frá mér og niðureftir og síðan aftur heim.
27. október 2008 klukkan 13:04
Jón og Elsa María.
Engin athugasemd
25október

Tengdamamma á afmæli í dag!!

Já hún Ragnhildur Jóna á afmæli i dag.....  Hvað tíminn líður hratt.  Mamma hefði líka átt afmæli þann 19. okt sl.  Þær voru nánast jafngamlar uppá viku...  Mér finnst svo fyndið þegar ég ber þær saman,  Þær eru svo rosalega ólíkar.  Ragnhildur er svo mikil húsmóðir, skipulögð og snyrtileg og með allt á hreinu.  Mamma var hinsvegar eins og stormsveipur, ég held að ég sé ekki að ýkja neitt..  Ekki meint á slæman hátt....  Hún var alltaf svo kraftmikil, frumleg og fjölhæf.  Ég daíst að þessum konum sko.  Þær hafa báðar haft mikið að segja í mínu lífi. 


Ég læt þetta verða orð dagsins í dag.  Elsa María
25. október 2008 klukkan 11:38
Jón og Elsa María.
Almennt
Engin athugasemd
22október

maður er nú bara rasandi..........

Maður veit bara ekki hvað maður á að skrifa.  Ég er nú búin að gera þessi líka lifandi helling sko.  Enn að koma því að blað....  Mér fannst bara ástandið í landinu þannig að það hljoti nú að vera mikilvægara enbloggið mitt.  Nú aftur á móti er ég að skipta um skoðun....  Þetta ástand er svo niðurdrepandi, leiðinlegt og mannskemmandi að nú nenni ég ekki lengur að horfa eða hlusta fréttir nema kannski einu sinni á dag. 

Svo getur ekki verið að ég sé með leiðinlegra blogg heldur en það sem er endalaust verið að staglast á og er að gerast allt í kringum okkur  M

Minna má nú sjálfsálitið vera???!!!

En sem sagt  það er búið að smala, slátra og ganga frá flestu.  Óli hefur hjálpað Nonna afskaplega mikið í haust hvað þetta allt saman varðar og er það ómetanlegt.  Það er alveg frábært að eiga góða að.  Ég get ekki fullþakkað sumum alla þá aðstoð sem það gefur okkur.  Mér finnst svo þegar að maður segir takk að það sé engan veginn nóg.... mig langar tilað gera eitthvað meira.... Hugmyndir vel þegnar??

T.d Óli í haust og Emil í sumar svomaður nefni bara nokkur nöfn  Síðan er Ástey alltaf að koma heim og hjálpa, þessi elska.  Hafdís og Heiðdís hjálpa líka mikið til.

Ég hef sjálf verið eiginlega bara á flakki frá því að ég kom úr veikindafríinu mínu.  Fyrst fór ég samstarfsleikskólastýrum og leikskólafulltrúanum í ferð til Árborgar.  Gistum á Hótel Selfossi eina nótt og skoðuðum leikskóla og Draugasetrið.....  mjög gaman.

Svo var starfsdagur í leikskólanum og þar sem við fengum vísglu sem heilsuleikskóli 29 sept.  þá urðum við að fara á 1. ráðstefun sem Heilsuskólasamtökin héldu í Reykjanesbæ.  Við lögðum að sjálfsögðu land undir fót og til að gera góða ferð betri þá fengum við líka miða á tónleikana sem voru til minningar um Vilhjálm.  Mjög gaman og frábærir tónleikar.

Nú er svo að maður þakkar fyrir að hafa vinnu og eiginlega að búa í sveit.  Síðan að farið var að tala um óðaverðbólgu og þessháttar þá bara missti ég mig.....  æddi út í búð og er búin að hamstra fyrir jólabaksturinn.....  ég keypti pakkningu af sykri og hveiti og tonn af smjörlíki. Nú geta Jólin komið....  það verða smákökur heima hjá mér.


Fimm sannanir fyrir því að nú er árið 1975:

 1. Við eigum í stríði við breta (með litlum staf af ásettu ráði)

 2. Það eru gjaldeyrishöft

 3. Það ríkir óðaverðbólga

 4. Vinsælustu lögin eru með ABBA og Villa Vill

 5. Forsætisráðherrann heitir Geir og er sjálfstæðismaður

 

 

Nýjasta pick-up línan á djamminu: "Sæll, ég er ríkisstarfsmaður"



Þar til næst....

24. október 2008 klukkan 12:46
Jón og Elsa María.
Almennt
Engin athugasemd
09október

Málið í dag!!!!!

 An American said:
 "We have George Bush, Stevie Wonder,  Bob Hope, and Johnny Cash."*
 

And an Icelander replied:
"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope,  and no Cash".

09. október 2008 klukkan 08:18
Jón og Elsa María.
Engin athugasemd
30september

Hehehe

Dag nokkurn þegar maðurinn kemur heim frá vinnu sinni kemur hann að öllu gjörsamlega á hvolfi í húsinu..

Börnin hans 3 voru úti, ennþá í náttfötunum að leika sér í drullunni með nestisboxin tóm og umbúðapappír var stráð ut um alla lóðina...

Dyrnar voru opnar á bíl frúarinnar, sama sagan var með útidyrnar á húsinu..

Þegar hann kom inn í forstofuna blasti við honum enn meiri óreiða.

Lampi hafðu verið felldur um koll, gólfmottan var kuðluð við einn vegginn.

Í næsta herbergi var teiknimynd í TV og á hæsta styrk og leikföng af öllum stærðum og gerðum voru dreifð um allt herbergið.

Í eldhúsinu .. diskarnir flæddu út úr vaskinum.. morgunmaturinn var sullaður út um allt borð.. hundamatur út um allt gólf....

brotið glas var undir borðinu, smá sandhrúga var við bakdyrnar .

Hann hraðaði sér upp stigann, troðandi á leikföngunum og fatahrúgum í leit að konu sinni.

Hann hafði áhyggjur af því hvort hún hefði orðið veik eða eitthvað alvarlegt hefði komið fyrir.

Hann fann hana hangsandi inni í svefnherbergi, ennþá í krumpuðum náttfötunum að lesa smásögu.

Hún leit brosandi á hann og spurði hvernig dagurinn hefði verið.

Hann leit á hana ringlaður og spurði, "Hvað skeði hér í dag?"

Hún leit aftur brosandi á hann og svaraði:

"Þú spyrð mig á hverjum degi þegar þú kemur úr vinnunni hvað ég hafi eiginlega verið að gera í allan dag?"

"Já" segir hann tortrygginn.

Hún svarar. "Jæja, í dag gerði ég ekkert!!!"

30. september 2008 klukkan 13:10
Jón og Elsa María.
1 athugasemd

Könnun

Hvernig líst þér á að ég fari að auglýsa handverkið mitt hér inni?

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Jón og Elsa María.
  • Staður: Ísafjarðarbær

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Flokkar

Niðurtalninginn er hafin.....